
Gómsætir ostar úr Búrinu og vel valinn bjór með. Sælgæti!
Ég fékk til mín kæra gesti í heimsókn í vikunni, nafna minn og kollega Ragnar Freyr Ingvarsson matarbloggara og hans gullfallegu og lífsglöðu eiginkonu Snædísi. Það er orðið allt of langt síðan við hittumst síðast. Við hjónin erum ágætis kokkar og þá sérstaklega betri helmingurinn en þegar von er á svona matvönu glæsifólki hokið af reynslu í eldhúsinu þá getur það orðið dálítið taugatrekkjandi að ákv kvað skal bjóða uppá. Það er þó eitt sem ekki klikkar og það eru eðalostarnir. Mér er sama hvort það er hinn síbölvandi Gordon eða allsberi kokkurinn, það kunna allir að meta góða osta og meðlæti. Ostar eru einnig kjörið tækifæri til að gera tilraunir með bjórpörun því oftast rata mismunandi tegundir osta á bakkann og því hægt að velja úr mörgum bjórstílum. Ég veit að það stuðar marga en bjór passar í raun betur með ostum en rauðvínið. Vín er heldur hvasst og sýran yfirgnæfir oft viðkvæmt bragðið í mildari ostum. Svo má til gamans geta þess að gerið í bjórnum er ekki ósvipað því sem notað er við gerjun osta. Uppruninn er einnig sambærilegur, mjólkurvörur sem koma frá kúm sem bíta gras. Byggið í bjórnum er líka „gras“. Þannig má finna eiginleika sem blandast vel saman og stuðla að ljúfri pörun.

La Trappe er ofsalega fallegur og ljúfur
Þar sem gestir okkar eru meira rauðvínsfólk en bjórnördar ákvað ég að nota tækifærið og gefa þeim ögn innsýn inn í hina dásamlegu veröld bjórs og hamingju. Ostarnir voru vel valdir úr Búrinu, að sjálfsögðu fékk Primadonna að fylgja með, það er enginn ostabakki án hans að mínu mati og hann er dásamlegur með bjór t.d. amerískum pale ale eða jafnvel IPA. Svo verðum við að hafa einhvern góðan blámygluost umm. Hinn franski Bleu d’ Auvergne varð fyrir valinu eftir nokkuð smakk í Búrinu. Ofsalega flottur ostur, bragsterkur en samt ekkert um of og dálítið kryddaður með mikla mýkt. Hér passar vel að hafa bjór með dulitla sætu til að vega á móti en einnig smá bit. Sjálfur hefði ég valið imperial IPA á borð við Brewdog Hardcore IPA sem gefur þægilega sætu og beiskjubit eða fara alla leið og prófa góðan barley wine svo sem Anchor Old Foghorn. Ég þekki ekki alveg bjórstig gesta minna og var því dálítið hræddur um að þetta væru of öflugir bjórar. Ég ákvað því að prófa bara venjulegan IPA sem ég átti kaldann í ísskápnum, Punk IPA frá Brewdog, hann býr reyndar ekki yfir sama sæta keimnum og hinir en alltaf gaman að prófa, svo á hann líka vel við Primadonnuna. Svo er það Myrkvi frá borg, hann er porter og slíkir bjórar koma vel út með t.d. blámygluostum og eru ekki eins öflugir og stout bjórar sem passa jafnvel enn betur við. Það er nokkur sæta, ristað malt og ljúfmeti í þessum bjór sem tónar vel með þessum osti. Það verður svo að segjast að ef maður er með hár á bringunni og þorir „all in“ þá má prófa hinn þróttmikla Lava sem er imperial stout með miklum reykkeim. Smellpassar með gráðostinum og svo ég tali nú ekki um reyktar pylsur sem auðvitað rata oftast með á ostabakkann. Þriðji bjórinn þetta kvöld var enginn höfuðverkur. Ég valdi La Trappe Tripel því ég veit að flestir sem hafa bara smá gourmet palletu ráða vel við þann bjór. Hann er þróttmikill og heitur (rúm 9%) með ljúfan ávaxtakeim og sætu. Ég hefði einnig geta valið belgísku trappist bjórana t.d. Chimay eða Westmalle en verðið hér á La Trappe er einstaklega gott og hann er ekkert síðri. Þessi bjór passar að mínu mati við alla þá osta sem voru í boði þetta kvöld ofsalega flottur stíll. Það er kannski ekki skrítið, flest trappist brugghúsin gera einnig sinn eigin ost sem passar við bjór þeirra.
Með þessu öllu höfðum við svo klassískt meðlæti, reykta pylsu, heimalagað hrökkbrauð, ólifublöndu, sultur og ýmiskonar gúmmilaði og svo auðvitað Dijon hunangssinnep.
Ragnar Freyr og Snædís eru mikið rauðvínsfólk og því ákváðum við einnig að bjóða uppá gott rauðvín með til að tryggja að enginn færi ósáttur frá borði. Ég þekki ekki mikið til vína en við hjónin höfum þó komið okkur upp nokkrum uppáhalds þrúgum og vínlöndum. Þessa dagana erum við alveg kolfallin fyrir vínum frá Argentínu þar sem Malbec þrúgan er allsráðandi. Þetta er dásamleg þrúga, þróttmikil, þétt og ljúf vín. Við höfum mikið verið að reyna Trivento vínin sem fást hér í ýmsum verðflokkum, öll góð vín, ákváðum þó að bjóða uppá annað vín frá Argentínu einnig með Malbec þrúgunni. Þetta er vín frá Trapiche sem einnig er í miklu uppáhaldi. Nafni minn mætti svo vopnaður til leiks með okkar uppáhalds vín frá Trivento. Skemmtileg tilviljun, miklir menn hugsa eins ekki satt? 🙂
Já kvöldið var vel lukkað enda ekki annað hægt þegar maður nýtur nærveru góðra vina, ostar og drykkir eru bara auka bónus. Bjórinn gekk vel í mannskapinn og auðvitað rauðvínið með. Án þess að leggja nokkrum orð í munn þá held ég að gestir okkar hafi kunnað vel við bjórinn, ég held að La Trappe Tripel hafi átt vinninginn þetta kvöld.
Kærar þakkir fyrir komuna kæru vinir og takk fyrir okkur!!!
Ekkert að þakka, annað hvort Ragnar Freyr eða Snædís 🙂
Ástarþakkir fyrir yndislegt kvöld! Veit ekki hvort skaraði fram úr, veitingarnar eða félagsskapurinn! Kannski fannst mér bara bæði betra…