Saison virðist vera dálítið inn hjá mér síðastliðið ár enda um gríðarlega góðan bjórstíl að ræða. Það er svo sem ekkert undarlegt við það að maður er ekki að drekka saison alla daga hér á klakanum því úrvalið er nánast núll. Saison Dupont hefur reyndar verið til hérna lengi og þar er sko aldeilis ekkert slor á ferð. Svo kom jú hinn íslenski Skaði sælla minninga í fyrra og sló heldur betur í gegn meðal bjórnörda og segja má að Ship O Hoj IPA sá nýjasti frá Ölvisholti sé eins konar humlaður saison einnig.
Fyrr á árinu fór ég með fjölskylduna til Orlando og greip tækifærið til að smakka amerísku túlkun þessa belgíska bjórstíls enda fáir bjórstílar eins viðeigandi í yfir 30 stiga hita við sundlaugabakkann. Þetta eru auðdrekkanlegir bjórar, mildir en þó flóknir og margslungnir. Kryddaðir tónar og svo ferskleiki í formi súraldins af ýmsum toga. Ég datt niður á nokkra góða í þessari ferð og var Great Devide Culette (7.3%) sérlega eftirminnilegur. Svo rak ég augun í þennan frá Stone Brewing, Matt’s Burning Rosids. Það var aðallega tvent sem kveikti áhuga minn, brugghúsið Stone sem gerir ekkert nema góðan bjór og því eru gæðin tryggð og svo var það imperial saison en slíkt hafði ég aldrei smakkað. Það að hann er bruggaður með malti reyktu yfir kirsuberjavið var bara auka bónust.
Sagan á bak við þennan bjór er dálítið hjartavermandi en þeir hjá Stone tileinka bjórinn fyrrum bruggara hjá brugghúsinu Matt Courtright sem lést nýlega langt fyrir aldur fram. Uppskriftin var eitthvað sem Matt hafði verið að setja saman skömmu áður en hann lést. Ef maður fer inn á síðuna þeirra má lesa heilmikið um þennan Matt sem virðist hafa verið afar næs gaur.
Þá að bjórnum, ekki það að menn komist svo sem yfir hann hér heima en við Íslendingar förum jú mikið til Flórida og þar ættu menn klárlega að reyna að hafa uppá honum ef kostur gefst. Bjórinn er glæsilegur í glasi með fallega ljúfa froðu, í nefi er mikið krydd og svo þegar líður á byrja kirsuberin að gera vart við sig. Í munni er mikill skrokkur og ofsalega mikið bragð með kryddum og þónokkurri sætu. Reykkeimur er frekar látlaus og í raun þarf maður að vita af honum til að merkja. Hefði mátt vera öööörlítið meira áberandi. Kirsuber eru hins vegar mjög áberandi og gera þetta klassíska saison bragð enn skemmtilegra en án þess þó að stela senunni….bjórinn heldur áfram velli sem saison.
Frábær saison sem menn verða að prófa.
Það er svo ekki hægt að fjalla um saison án þess að nefna nýjustu viðbótina á klakann, Logsdon bjórinn sem nú fæst t.d. á Microbar og í sérpöntun ÁTVR. Logsdon er líklega þeir allra flínkustu í bruggun saison bjóra og ég hvet fólk til að ná sér í nokkrar flöskur. Sumir hafa kannski þegar smakkað eitthvað frá þeim á bjórhátíð Kexins fyrr á árinu en þar voru nokkrar svakalega flottar perlur frá þeim.