Ég er nú ekki vanur að skrifa hér um Kalda enda fyrir mína parta um lítt spennandi bjór að ræða hingað til. Ég var eiginlega búinn að gleyma því að ég hitti Sigurð Braga bruggara Bruggsmiðjunnar hérna um árið á bjórhátíð Kex. Við spjölluðum stuttlega saman og hann sagði mér að þeir væru að smíða Kalda India Pale Ale en það þóttu mér virkilega flottar fréttir. Síðan þá eru liðnir nokkrir mánuðir og maður bara búinn að gleyma….slíkt gerist.
Það hefur annars lítið farið fyrir þessum bjór sem mér finnst dálítið undarlegt þar sem hér er um að ræða fyrsta alvöru skref Kalda út fyrir „þægindarammann“ ef svo má segja. IPA frá þessu brugghúsi sem hingað til hefur bara komið með léttan tékkneskan pilsner í öllum mögulegum útgáfum eru stórar fréttir, meira að segja mjög stórar fréttir.
Ég vissi eignilega bara ekki af því að hann væri kominn „í hús“ fyrr en ég rambaði einu sinni sem oftar inn á Microbar núna í þarsíðustu viku. Ég hef reyndar verið mjög, mjöööög upptekinn og ekkert kíkt á öldurshús borgarinnar undanfarið. Nú hins vegar er stórum áfanga lokið í mínu námi og ég ákv að kíkja á Steina á Micro í leit að einhverju góðu í flösku til að fagna. Ég fann það að sjálfsögðu og má lesa um þá hamingju hér en ég rak einnig augun í Kalda IPA á krana og fékk að smakka.
Bjórinn kom virkilega á óvart, ég verð að viðurkenna að ég bjóst ekki við miklu (fordómar, ég veit), ég bjóst við Kalda pilsner með örlitlum humalkeim en nei þetta er alvöru IPA, humlaður og fínn með flotta beiskju, dulitla sætu á móti og fínann skrokk. Það er bara alls ekkert að þessum bjór og get ég vel mælt með honum um leið og ég segi að þetta er klárlega besti Kaldinn í fjölskyldunni. Ef þetta er vísir að nýjum áherslum brugghússins, vísir af því sem koma skal þá eru góðir tímar framundan. Vonum það besta.
Logsdon Peche´n Brett – hinn fullkomni sumarkarl
Logsdon brugghús var mér ókunnugt um þar til tiltölulega nýlega þegar ég smakkaði Seizoen Bretta hjá Sæberg nokkrum Einarssyni á bjórhátíð Kex fyrir nokkru síðan en Sæberg er eins konar listrænn hönnuður og meðeigandi Logsdon brugghúss. Brugghúsið er amerískt „sveitabrugghús“ staðsett í Oregon sem einbeitir sér að belgískum bjórstílum, sér í lagi villibjór og saison (sveitabjór). Þessir gaurar eru snillingar í Brettanomyces villisveppnum og notkun hans í bjór. Ég held að Seizoen Bretta hafi verið besti saison sem ég hef smakkað svei mér þá!
Ég var að klára nokkuð stóran áfanga í mínu sérnámi á föstudaginn, eða hann er amk stór að mínu mati og því fannst mér ástæða til að fagna. Hvað er betra en að fagna í bjór…stórum bjór, eitthvað sem maður venjulega tímir ekki að kaupa? Júbb ég spjallaði við Steina á Micro en hann hefur smakkað vel flest sem til er hér á landi í bjór og spurði hann ráða, hvaða bjór myndi hann fá sér við svona tækifæri. Steini benti mér á þennan m.a. og hafandi smakkað tvo Logsdon bjóra áður þá þurfti ekki mikið til að sannfæra mig, ég meina 10% Saison með villigeri sem hefur verið aldraður á eikartunnu með ferskjum? Ekki flókið.
Þetta er gullfallegur bjór í glasi, gulur og mattur með flotta þykka froðu. Ískaldur í sólinni þannig að glasið verður svona í móðu eins og í góðri auglýsingu. Í nefi mætir manni dásamlegur ferskjukeimur i bland við „funky“ brett. Fyrir þá sem ekki þekkja keiminn af villibjór þá er dálítið erfitt að lýsa því. Sumir tala um fúkkalykt, háaloft, mysukeim, súran keim en allt er þetta eitthvað sem gefur ekki góða mynd af því sem maður finnur. Menn verða bara að fá sér einn klassískan villibjór t.d. Cantillon Gueuze eða 3 Fonteinen Oud Gueuze sem hafa stundum fundist á Microbar, og þefa. Logsdon Peche er ekki gott dæmi um „funky“ hins vegar þar sem ferskjurnar eru afar áberandi.
Í munni er þessi drykkur álíka magnaður, gríðarlega frískandi með áberandi ferskjum en án þess að verða væminn. Sýrði, funky villigerskeimurinn kemur í veg fyrir það, kemur virkilega vel út svona súrsætur. Svo kemur eikin þarna í gegn með eins konar vanillukeim eða kókos en afar látlaust þó og loks kryddaðir tónar frá gerinu. Bjórinn er þurr á tungu og það er ágætis beiskja en þó víðs fjarri því sem maður finnur í pale ale t.d. Sopinn endar svo með dálítið súrum eftirkeim sem gerir mann klárann fyrir næsta sopa. Það sem kemur svo á óvart er að þessi bjór er 10% en það er algjörlega ómögulegt að finna það í bragði. Alveg hreint magnaður sumarbjór, hitti beint í mark
