Gæðingur Hveitibjór

Gæðingur Hveitibjór

Gæðingur Hveitibjór

Ég hef alltaf tengt hveitibjór við sumarið.  Reyndar átti það betur við þegar við bjuggum í Danmörku þar sem raunverulegur munur var á vetri og sumri.  Þar var hægt að sjá sól yfir sumarið og dagarnir voru heitir.  Þá er ekkert betra en að svala þorstanum með ferskum og mildm hveitibjór en ólíkt því sem margir halda að þá er hveitibjór mjög svalandi drykkur.  Þessi tugga er orðin ansi tuggin en það er enn þörf á henni.  Hveitibjór, þrátt fyrir nafnið er ekki eins og að drekka brauð.  Hann er ekki saðsamur eins og þungt brauð.  Hveitibjór er bruggaður úr blöndu af möltuðu hveitikorni og byggi.  Hveitið gefur vissulega dálitla fyllingu og svo hnausþykkan froðuhaus ef rétt er að honum staðið.  Bjórinn er hins vegar afar mildur og ljúfur og með lága áfengisprósentu.

Þegar þetta er frá þá getum við skoðað þennan nýja hveitibjór frá Gæðingi brugghús.  Til að byrja með þá verð ég að koma að miðanum en hann er svakalegur, ég fæ ekki nóg af þessum listaverkum Hugleiks.  Miðinn er með appelsínugulum blæ sem er dálítið skemmtilegt því þetta er alveg sami litur og á bjórnum þegar hann er kominn í glas. Appelsínugulur og skuggalega mattur með froðu sem reyndar nær ekki almennilegum hæðum og fjarar tiltölulega fljótt út.  Sem hveitibjór þá mætti froðan vera mun meira áberandi.
Í nefi eru mildir tónar, ger og áberandi pera eins og þýskum hveitibjór sæmir.  Kemur svo dálítið á óvart í munni, ég óttaðist að hann væri væminn og hálf braðglaus en svo var ekki.  Þrusu bragð, ekta þýskur hveitibjór, dálítil pera sem er alls ekki of áberandi og ekkert „bubblegum“ eins og stundum er.  Fylling góð án þess að verða of mikill.  Ögn beiskja með sem gleðir og kætir.  Flott eftirbragð.

Allt í allt, flottur hveitibjór sem hefur allt sem hveitibjór á að hafa fyrir utan froðuna.  Ég mæli klárlega með þessum.  Fæst stundum á krana á Microbar.

Sá græni: Þetta er flottur bjór af ölgerð.  Dálítið meira bragð en maður á að venjast í lagerbjór en alls ekkert sem ætti að trufla of mikið.  Beiskja er ekki of mikil en það er dálítið gerbragð sem gæti truflað ef maður er óvanur ölinu.  Ég held að fólk ætti auðveldlega að ráða við þennan sem t.d. fyrsta skref úr lager yfir í ölið.

 

Bitri Gaurinn – innsent heimabrugg!

Bitri Gaurinn - innsent heimabrugg!

Bitri Gaurinn ESB

Það er svo gaman að fá að reka tungu ofan í heimagerðan bjór frá ykkur þarna úti. Ég fæ alltaf annað slagið senda einn og einn til að smakka. Þó svo ég skrifi ekki um þá alla þá detta einn og einn dómur hér inn. Stílar eru margir og mismunandi. Það er mjög klassískt að brugga Pale Ale eða IPA heima við. Stout og Imperial Stout er einnig mjög vinsælir stílar. Sjálfur er ég orðinn mjög spenntur fyrir Imperial Stout því ég er mjög kresinn á þann stíl og er stöðugt
að leita af þeim fullkomna. Það er gaman að sjá þegar fólk fer aðrar leiðir,ESB eða Extra Special Bitter er eitthvað sem ég drekk ekki á hverjum degi. Í raun ekki stíll sem ég hef mikið lagt mér til munns. Er reyndar ekki mikið fyrir enskan bjór yfir höfuð. Var samt mjög spenntur fyrir þessum skemmtilega bjór sem kemur frá Ragga hjá EFLU, bjórinn kallar hann Bitri Gaurinn. ÉG veit ekki prósentuna en hann notar Pale Ale, Caramunich II og Cara Aroma malt. Humlarnir eru East Kent Goldings og Fuggles og svo enskt ölger.

Bjórinn er dálítið mikið kolsýrður, ekki beint gusher en honum liggur á að komast úr flöskunni. Mikil froða í glasi sem hverfur fljótt.Liturinn er brúnn og passar þannig við stílinn. Mattur og ósíaður sem er plús í mínum bókum.
Í nefi má finna dulitla sætu og sýrðan blæ. Malt er þarna einnig með og svo einhver ber. Örlítið járn sem hverfur þegar líður á. Í munni er um mildan bjór að ræða, töluvert kolsýrður sem truflar ekki en miðað við stíl mætti vera minna. Sætur á tungu, malt og dash af ávöxtum. Biturleika er stillt í hóf. Bjórinn er í nokkuð góðu jafnvægi þó svo að sætan nái ögn yfirhöndinni. Líklega mætti bjórinn vera beiskari miðað við stíl en fyrir mína parta er hann bara nokkuð flottur einmitt svona. Ljúft maltað eftirbragð hangir inni lengi lengi.

Já ég er mjög sáttur við þennan bjór. Bitri Gaurinn fær grænt ljós hjá mér og verður líklega til þess að ég held ég fari aftur að eiga meira við ESB og English Bitter. Takk fyrir mig!