
Chartier ofsalega vinsæll en ofmetinn?
Kannast einhver við staðinn? Ég valdi þessa mynd því á þessum stað í París fékk ég það besta Foie gras sem ég hef nokkurn tíman smakkað. Ég er reyndar ekki mikill Foie gras maður í þeim skilningi að ég fæ það í raun sjaldan. Rétturinn getur verð ofsalega góður eða bara eiginlega vondur. Þetta er dálítið eins og créme brulée, hef smakkað ótal margar útgáfur, það virðist vera hægt að gera þann rétt á óendalega marga máta. Nóg um það, staðurinn sem ég er að tala um þarna á myndinni heitir Chartier og ku vera ofsalega vinsæll resturant í París. Okkur var bent á það af heimamönnum að fara þarna svo við gerðum það, staðurinn á að vera ódýr og með hágæða mat. Við stóðum í ofsalegri röð til að komast þarna inn. Þegar inn var komið tók við stór salur fullur af fólki. Allt á iði, brjáluð læti, þjónar hlaupandi út um allt kófsveittir og með blæðandi magasár af stressi. Við tókum eftir því á meðan við biðum eftir matseðlinum að fólk var nánast rekið út um leið og það renndi niður síðasta bitanum. Ekki alveg staðurinn til að eiga rómatíska stund en samt heilmikil upplifun og í raun alveg þess virði að fara þarna bara til að fá besta Foie gras í heimi!!!
Nú er ég mikið að spá í pörun matar og bjórs. Þegar ég sat þarna og smjattaði á þessu lostæti fór ég að spá í hvaða bjór kæmi vel út með. Rauðvínið var ágætt en bjór væri enn betra held ég. Ég fór að máta í höfðinu og datt í hug eitthvað þróttmikið Imperial Stout eða barley wine? Ég held að það gæti verið stórgóð blanda, þrumu bjór, mikið bragð og svo mjúkur ofsalega ljúfur Foie gras ummmm. Vandinn er að bjórinn er ekki til þar sem maður fær réttinn eða öfugt. Það er því ekki hlaupið að þessu. Hvað haldið þið lesendur góðir? Hefur einhver smakkað þessa pörun? Getur annars einhver bent á stað sem býður uppá góðan Foie gras?