Það er ekki um að villast, jólabjórinn kominn til byggða og allt ætlar um koll að keira. Bjórinn mokast út úr vínbúðunum og sumar tegundir búnar strax á fyrsta söludegi löngu fyrir lokun. Já Íslendingar hafa tekið vel við sér í ár enda reynslunni ríkari undanfarin ár. Góði bjórinn klárast nefnilega alltaf löngu, löngu fyrir jólin. Stundum finnst manni þó eins og menn kaupi bara eitthvað og séu ekkert að spá í hvort bjórinn sé yfir höfuð að þeirra skapi.
Í ár er óvenju mikið úrval og kannski dálítið erfitt að velja rétta bjórinn. Ég hef hingað til tekið þátt í jólabjórdómum á Vínotek sem og hér á Bjórbókinni. Í ár hafði ég ekki tök á því að vera með í Vínotekinu þó svo að maður hafi smakkað vel flest sem er nú á boðstólum en ég treysti þeim félögum Hauki Heiðar, Gunnari og co vel fyrir þessu í ár.
Hér á Bjórbókinni/Bjórspeki höfum við yfileitt tekið alla jólabjóra ársins fyrir og skrifað um þá dóma, í ár munum við hins vegar breyta dálítið út af vananum. Það er haugur af frekar óspennandi jólabjór á boðstólnum, eitthvað sem við höfum tekið fyrir ár eftir ár (hér má sjá þá dóma t.d.). Við einfaldlega nennum ekki að eltast við þessa karla í ár, það eru aðrir sem hvort eð er hafa látið sína dóma falla þar, Vinotek, Fréttablaðið, Vísir og Fréttatíminn til að nefna einhverja. Mikið af þessum jólabjór er hvort eð er eins ár eftir ár…… hafir þú smakkað hann í fyrra þá er hann eins í ár eða ooooofsalega svipaður í það minnsta.
Það sem er hins vegar spennandi að skoða að þessu sinni að okkar mati verður tekið hér fyrir. Þá eru það t.d. nýjir bjórar á markaðnum eða eitthvað sem t.d. er breytilegt frá ári til árs. Stóru „bringuhárssprettandi“ karlarnir eru svo alltaf spennandi. Til að lífga uppá þetta aðeins hef ég sett inn nokkur tákn við hvern bjórdóm hér að neðan.
Skýring:
beiskja (1-4),
fylling (1-4),
jólafílingur (eitthvað sérstakt svona jóla (1-4)),
bestur í ár,
næstbestur.
Ef við byrjum á hörðu deildinni þá er vert að minna á jólabjórinn frá Mikkeller í ár þó svo að sama úrval sé í boði og var í fyrra. Það sem er hins vegar mikilvægt í því samhengi er að pæla aðeins í aldrinum á bjórnum. Mikkeller Hoppy Luving Christmas er að okkar mati einn sá allra skemmtilegasti sem stendur okkur til boða hér á landi yfir jólin. Humlaður og frískandi með örlitlum jólablæ sem stafar af engifer og greni sem notaður er í bjórinn. Humlar eru þannig að þeir tapa fljótt gleðinni, missa karakter og bragð með tímanum og því er ekki unt að geyma þennan bjór lengi. Í ár er því komið ferskt „batch“ oooofsalega ljúfur bjór sem menn verða að prófa. Hafa samt í huga að það er örlítið humalbit í honum.
Mikkeller Fra … Til er hins vegar sá sami og fyrir ári, imperial jólaporter sem hefur fengið að þroskast á flöskunum frá því í fyrra. Nú er hann orðinn mun skemmtilegri og meiri karakter í honum. Maður þarf þó að hafa gaman að porter stílnum til að kunna að meta þennan bjór. Ristað kaffi, dökkt 70% súkkulaði, ögn reykur og jafnvel lakkrís. Hér mætti benda fólki sem fannst bjórinn ágætur í fyrra að prófa aftur í ár og finna hvernig hann hefur komið „undan vetri“.
Prófíll: 8.0%
Mikkeller Red White Christmas er ofsalega elegant jólabjór, blanda af belgískum hveitibjór (white) og rauð öli (red ale). Hér er tækifæri til að slá um sig ef maður vill koma vel út í jólaboðinu. Bjórinn kemur í 1.5 L flösku og er ofsalega grand að skella einum slíkum á borðið. Innihaldið er álíka magnað með haug af humlum og beiskju. Þéttur í munni, með ýmsu kryddi, gerkeim, kóríander og jafnvel smá mandarínublæ. Í bakgrunni er notalegur karamellukeimur. Virkilega flottur bjór en gott er að hafa í huga að hann hentar meira þeim sem hafa dálítinn dug og þor.
Prófíll: 8.0%
,
Það verður svo að nefna jólabjórinn frá Borg en nú er svo komið að maður er farinn að bíða spenntur um hver jól eftir að sjá hvaða góðgæti kemur úr þeirra smiðjum. Í ár tefla þeir fram tveim jólabjórum, það er hinn gríðarlega vinsæli Giljagaur frá því í fyrra nema að hann hefur fengið að þroskast í ár á eikartunnum og kalla þeir hann Giljagaur 14.1. Svo er það hinn litli og saklausi Stúfur sem er 2.26% léttöl með miklum jólakeim. Það má svo taka fram fyrir þá sem enn eiga Giljagaur frá því í fyrra að hann er nú orðinn ofsalega flottur og var hann þó ljúfur í fyrra. Ef við byrjum á honum, Giljagaur 2012 nr 14. Sá er af gerðinni Barleywine og má lesa nánar um hvernig hann kom út í fyrra hér. Nú hefur hann tekið á sig allt aðra mynd og er að mati okkar hér kominn í sitt besta form. Gríðarlega flottur bjór sem hefur einhvern veginn náð að „sjatna“. Hann er orðinn mun „þéttari“ einhvern veginn og margslunginn. Í nefi ofsalega ljúfir tónar, þurrkaðir ávextir á borð við rúsínur og svo einhver vanillukeimur jafnvel? Í munni er hann ekki eins beittur og fyrir ári heldur er hann orðinn mjúkur og „kúlulaga“ ef það gefur einhverja meiningu. Það er mikil sæta í honum og vínlegur karakter, ögn humlar og bit og svo ljúfir þurrkaðir suðrænir ávextir. Gæti alveg talað um kókos jafnvel? Áfengið kemur alls ekki illa út en í fyrra var það heldur áberandi. Já maður sér ekki eftir því að hafa látið þennan kúra á myrkum stað í ár. Giljagaur 14 er þar með í efstu sætum jólabjórlistans í ár, ef ekki í efsta sæti.
Prófíll: 10.0%
Stúfur 2.26% er svo nýjasti bjórinn í röðinni frá Borg. Um er að ræða „lítinn“ bjór í stíl við lítinn jólasvein. Ég verð þó að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvað þeir félagar hjá Borg eru að fara með þessum, vissulega eru þeir að halda í „conceptið“ með skýrskotun í íslensku jólasveinana, en léttöl er ekki málið. Jú jú auðvitað gaman að gera tilraunir, það er bara vonlaust að gera góðan léttbjór. Þessi er því dálítil vonbrygði en þegar það er sagt þá má þó reyna að dæma hann miðað við áfengismagn. Hann er ofsalega fallegur í glasi, það vantar ekki, rauður og flottur og það er haugur af jólum í honum, negull, kanill og bara öll flóran. Bjórinn er hins vegar með léttan og látlausan skrokk eitthvað sem ég ímynda mér að Stúfur jólasveinn sé ekki og svo er hann heldur innantómur í restina. Miðað við léttöl þá er þetta ágætur drykkur en ég myndi ekki kaupa mér kauða nema ég væri kannski óléttur? Nú er þetta bara okkar mat hér og alls ekki víst að fólk sé sammála. Við hvetjum fólk að prófa samt en þá með það í huga að um léttbjór er að ræða. Það hefði hins vegar mátt hafa bjórinn nákvæmlega svona jólakryddaðan en með þéttari skrokk og mun meira áfengi og svo framreiða hann í litlum flöskum til að halda í conceptið.
Prófíll: 2.26%
Giljagaur 14.1 eikarþroskaður er svo stóri karlinn frá Borg í ár. Gríðarlega skemmtilegur bjór sem mikið til er byggður á sömu uppskrift og Giljagaur 14 þó með ööörlitlum tifæringum. Hann hefur svo verið að þroskast og dafna á eikartunnu í ár. Þetta er gullfallegur bjór í glasi, rauð áferð og hvít falleg froða sem skapar réttu jólastemninguna. Þetta er ofsalega potent og flottur karl og alls ekki fyrir aumar sálir. Hann býr yfir einhverjum sætum jólablæ, mandarínur og krydd í nefi, kannski ögn kókos (líkast til frá eikinni)? Í munni er hann þéttur og mikill með sætum blæ,þar eru einnig mandarínur á sveimi. Hann er jafnframt dálítið sprittaður sem truflar mig örlítið og svo er einhver ljúfur eikarkeimur sem skapar virðuglega stemningu með snefil af vanillu og jafnvel kókos!
Virkilega skemmtilegur barley wine sem vert er að kanna. Hann kemur bara í gjafaöskju með glasi á um 2300 kr. Ég held að vert væri að geyma hann í ár til viðbótar.
Prófíll: 10%
To Öl Snowball Saison er nýr á Íslandi í ár. Þessi kláraðist nánast á fyrsta degi en ég náði þó í eitt eintak. Segja má að þetta sé eins konar blendingur, IPA, Saison og Villibjór allt hrært saman í eina flotta uppskrift. Hann er ofsalega fallegur í glasi, hnausþykkur froðuhaus sem minnir á snjóskafl. Í nefi eru kryddaðir belgískir tónar, ger og örlítill súr keimur og svo heilmikil villigerlykt umm. Í munni er meðal fylling, góð beiskja, ögn sæta frá maltinu og svo einhverjir kryddaðir tónar. Sýrði sasion – brett karakterinn kemur greinilega vel fram einnig. Þetta gengur algjörlega upp, flott blanda. Svo finnur maður ekkert fyrir áfenginu sem eru heil 8%. Það er hins vegar lítið jólalegt við bjórinn að okkar mati, þennan viljum við einfaldlega geta drukkið allt árið um kring. Þrátt fyrir það þá er þetta með þeim betri í ár.
Prófíll: 8%
Anchor Christmas 2013. Hér er kominn mjög áhugaverður bjór frá hinu ameríska brugghúsi Anchor. Það skemmtilega við bjórinn er að hann er aldrei eins frá ári til árs. Alltaf ný uppskrift þó svo að ákveðinn grunnur sé alltaf sá sami og það er alltaf nýtt tré sem prýðir miðann. Þrátt fyrir lága áfengisprósentu (5.5%) þá er þetta nokkuð stór bjór þó svo að ég viðurkenni að hann mætti vel vera aðeins meira „potent“ fyrir minn smekk. Yfirleitt er um ýmis skemmtileg krydd að ræða í karlinum og hann er margslunginn og flókinn á tungu og einhvern veginn allt öðru vísi en allir hinir jólabjórarnir á markaðnum. Flottur matarbjór einnig, um að gera að leika sér aðeins með það.
Prófíll: 5.5%
Steðji Jólabjór er skemmtilegur einfaldur jólabjór frá Steðja. Þetta er sá sami og í fyrra en virðist þó aðeins hafa verið tekið til í honum. Bjórinn er amk virkilega vandaður og hann gengur alveg upp. Um er að ræða lager líkt og Tuborg, Jólagull og Jólabjór víkings en hann hefur þó eitthvað meira að bjóða en þeir karlar. Hann er með góða fyllingu, og þægilega létta beiskju og svo lakkrís. Já þeir nota lakkrís frá Góu við bruggunina og gefur hann látlaust en þó greinanlegt lakkrísbragð í bakgrunni. Sætt maltið og humlarnir eru í fullkomnu jafnvægi og lakkrísinn kemur svo með flotta tilbreytingu í þetta allt saman. Lakkrísinn finnst líka örlítið í nefi ásamt flottum karamellutón. Mjög skemmtilegur jólabjór og tilvalinn með jólamatnum.
Prófíll: 5.3%
Carls Jul. Ég verð bara að taka þennan fyrir. Það er alls ekki um neitt stórkostlegt að ræða, þetta er bara heldur látlaus og einfaldur lager með smá ristuðum karamellukeim. Hins vegar er það bara nostalgia sem veldur því að við hér hjá Bjórspeki kættumst mjög þegar við sáum þennan á listanum. Það er bara eitthvað við að fá þennan á krana í 750 ml glasi í jólaösinni í Köben….og ekki skemmir fyrir heitar eplaskífur með. Já gaman að þessu. Skemmtilegur einfaldur en góður jólabjór fyrir danskar sálir.
Prófíll: 5.6%
Fyrst við erum svo farin að tala um nostalgiu þá hefur það einhvern veginn alltaf loðað við okkur eftir 8 ár í Danmörku að við verðum að fá amk einn jóla Tuborg um hver jól. Þetta er nefnilega ágætur lager og líkt og Carls Jul, með sætt ristað malt sem minnir á karamellu.
Prófíll: 5.6%
Það er vert að taka það fram að Jólabock Víkings fékk góða dóma í ár. Persónulega er ég bara búinn að fá hundleið á Bock stílnum og hef því ekki prófað bjórinn þeirra í ár. Verð líklega að bæta úr því og skrá hér inn.
Ölvisholt bjórinn kom mér líka á óvart. Hann er jólalegur og kryddaður en það vantar bara eitthvað? Heldur þunnur.