
Ástríkur ferðast til Spánar!
Nú er Ástríkur kominn í búðir heima, rétt fyrir Gay pride sem brestur á með öllu tilheyrandi um helgina. Þróttmikill bjór sem vert er að prófa. Mér skilst að hann sé til í litlu upplagi og því um að gera aö drífa sig að grípa kippu. Sjálfur ætla ég að geyma hann í ca ár því hann er ekki alveg nægilega þroskaður enn sem komið er þó hann sé ljúfur. Þrátt fyrir myndarleg 10% þá virkar hann bara nokkuð vel hér í 30 stiga hita í Stiges á Spáni, yfirlýstum Gay bæ rétt hjá Barcelona. Skemmtileg stemning, ég hefði átt að taka fleiri með hingað til að boða fagnaðarerendið!