.
- The Ginger Man…….elegant staður, 70 kranar með ýmsum klassíkerum en einnig gott amerískt öl. Dálítið svona uppastaður finnst mér samt.
- Tørst………………………Einfaldlega magnaður staður, frábær bjór og enn betri matur. Michelin waiting to happen. Algjört möst visit.
- Rattl ‘N Hum…………..Líklega minn uppáhalds, afslappaður staður, frábær bjór, sjaldgæft stöff oft á tíðum, gott barsnarl, frábær burger og staðsetningin fullkomin.
- Whole Foods…………..skemmtileg verslun og oft mjög flottur bjór. Risa stór bjórbúð við Bowery Culinary Center.
- The Jeffrey……………..Nýji gaurinn, virkilega skemmtilegur bar. Frábær þjónusta, flott kaffi, dásamlegur bjór og fríkaðir kokteilar. Hér fær maður að smakkprufur ef maður er óviss.
.
The Ginger Man á 36th rétt við 5th avenue
Við lentum um kl 12:30 á JFK og ég var kominn á hótelið mitt líklega um kl 14:00, Pod 39 á 39th street milli Lexington og 3rd avenue. Fyrir þá sem eru fljótir að reikna má sjá að 39 er alls ekki langt frá 36. stræti þar sem The Ginger Man liggur, en það var sko engin tilviljun. Pod39 er snyrtilegt hótel en með ofsalega litlum herbergjum sem ég vissi svo sem fyrirfram. Ef maður ætlar að eyða meira í ölið og minna í svefnaðstöðuna þá er þetta staðurinn en ég myndi líklega ekki bjóða frúnni uppá þessar aðstæður ef hún væri með í för. Hins vegar má benda á eitt en það er nefnilega dálítið flottur bar uppá þaki hótelsins á 17. hæð rooftop bar sem er ansi vinsæll um helgar. Þarna er útsýni yfir borgina og mjög skemmtileg stemning. Bjórinn þar er hins vegar arfa slakur enda er fókusinn meira á hanastélin þarna.
. Ég var fljótur að henda af mér ferðadraslinu, skipta um föt og koma mér svo á næsta bar, The Ginger Man á 36th str og 5th ave enda löngu tímabært að væta kverkar í almennilegum bjór.
Planið hjá mér þennan dag var að hitta kollega mína Hauk Heiðar, Eyjó og frú þarna á Ginge Man og fara svo að eyða smá aur í B&H, það er bara svo miklu skemmtilegra að eyða peningum í góðum félagsskap. Við vorum öll á mismunandi hótelum og því tilvalið að hittast á hlutlausum stað þar sem ekki er svo slæmt að bíða eftir hinum. Ég var fyrstur á staðinn sem var í góðu lagi, bara meiri tími fyrir ölið. Ég byrjaði á léttum karli Green Flash Citra Session 4.5% sem var frekar mildur og léttur. Vantaði dálítið skrokk og beiskju en hugmyndin er svo sem session bjór sem hentaði vel í miklum hitanum í borginni. Það bólaði ekkert á félögunum og því var ekkert annað en að panta sér nýjan bjór þegar þessi var kominn í kerfið, ekki sit ég þarna og prjóna meðan ég bíð. Ég ákvað að láta vaða í húsbjórinn, eiginlega bara formsatriði því ég var ekki mjög spenntur þar sem um er að ræða belgískan pale ale í grunninn. Ég er bara ekki á belgíska tímabilinu lengur. Bjórinn heitir The Ginger Man Ale bruggaður af Captain Lawrence sem er New York brugghús og því var ég í raun að fylgja mottoí mínu í leiðinni….alltaf að prófa amk einn localbjór. Bjórinn er belgískur hveitibjór kryddaður með engifer (ginger nema hvað). Jújú, bjórinn er fínn en ekki eins og ég bjóst við, hann er pínu þurr og svo kemur þessi undarlegi mikli engiferkeimur inn sem truflaði mig dálítið. Mæli ekki sérstaklega með þessu öli.Er þó sáttur enda ekki annað hægt í þessu umhverfi…fucking New York baby! Haukur félagi minn var mjög svangur og pantaði hann sér einhverja sinneps grillsamloku sem var víst „awesome“ svo ég noti hans orð. En eftir þrjá bjóra og eina awesome grillsamloku var mál til komið að eyða krónum í B&H, það er nefnilega mun einfaldara og skemmtilegra þegar maður er aðeins tipsí.
„The Ginger Man er opinn, stílhreinn og elegant bjórpöbb. Flott staðsetning, örstutt frá 5th og 5 mín frá Empire State. 70 kranar með fullt af klassíkerum og svo stundum perlur inn á milli. Maturinn einfaldur en virkilega ljúfur og þjónustan ágæt en þó dálítið uppáþrengjandi á köflum. Vefsíðan Beer Menus er algjört möst að skoða. Forðast The Ginger Man Ale húsbjórinn!“
.
Tørst í Brooklyn, hápunktur ferðarinnar?
Alveg síðan staðurinn opnaði í mars 2013 eða jafnvel fyrr hef ég verið á leiðinni að prófa. Snillingurinn á bak við Tørst er enginn annar en Jeppe J. Bjergsø (Evil Twin Brewery) tvíburabróðir Mikkels Borg Bjergsø sem menn þekkja einfaldlega sem Mikkeller, einn flottasti og virkasti (það má líka skipta út k fyrir t) bjórsmiður veraldar. Gæði staðarins eru því nokkuð tryggð og ekki skrítið að staðurinn hafi verið valinn 15. besti bjórstaður veraldar á Ratebeer í fyrra og á topp 10 lista yfir bestu nýju pöbbum New York borgar þetta árið skv Time Out Magasine. Ég var löngu búinn að ákveða að fara á staðinn sem fyrst, hitt kom mér svo skemmtilega á óvart, að ég gæti platað allt crewið með mér fyrsta kvöldið.
ágætur en ég sé það núna að ég hefði átt að kanna hvaða bjór væri á þessum lista því tveir voru af belgískum toga og einn þýskur schwartsbier sem ég er ekkert ofsalega hrifinn af. Þetta dansaði samt allt mjög vel saman og allir mjög sáttir. Eftir matinn skellti ég mér svo á einn Evil Twin Femme Fatale Brett IPA (6%), alveg hreint ljómandi bjór og líklega sá besti þetta kvöld, léttur með belgísku yfirbragi, funky og flottur með beiskum humlum. Ofsalega ljúfur. Ég hafði reyndar einnig mjög gaman af fyrsta bjórnum, berliner weisse sem heitir Evil Twin Nomader Weisse, súr og ferskur. Já alveg frábært kvöld með frábæru fólki og mæli ég fyllilega með þessum stað, algjört möst fyrir bjórágugamanninn en menn verða að vera tilbúnir í útgjöld…litlar 20.000 kr ísl á mann takk fyrir en veeeel þess virði. Auðvitað geta menn sleppt Luksus og farið bara á barinn fyrir mun minni pening.„Tørst, Brooklyn er alveg magnaður staður og ætti klárlega að vera ofarlega ef ekki efst á to-do listanum. Einfaldar innréttingar, lítill og notalegur. Frábær bjór á krana serveraður við sitt rétta hitastig, mikið frá Evil Twin en einnig perlur víða af úr heiminum. Maturinn á Luksus sem er sér matsalur inn af barnum er vægast sagt magnaður en kostar sitt. Ég spái því að Tørst verði kominn með Michelin stjörnu áður en langt um líður. Besti bjór kvöldsins Evil Twin Femme Fatale Brett IPA.“
Rattl N’ Hum á 33th street við 5th avenue.
.
Það var dálítil þynnka sem truflaði mig næsta dag en ég losnaði þó fljótt við hana eftir gott kaffi og með því á næsta Starbucks, hitinn og uppgufunin hjálpaði líka til. Ráðstefnan (Internal Medicine for Primary Care) hófst ekki fyrr en kl 14 þennan daginn og því nægur tími til að vakna og versla dálítið. Það fór lítið fyrir bjórnum þennan dag en það var ekki fyrr en eftir fyrirlestra dagsins kl 18:00 að ég gat farið að spá í bjórnum, eiginlega óþarflega seint fyrir bjóráhugamenn. Við Haukur félagi minn (ekki þó Haukur Heiðar Leifsson sem menn kannast kannski við úr bjórheiminum) ákv að byrja á The Ginger Man sem var í alfaraleið okkar félaga. Það endaði reyndar með því að mér var meinaður aðgangur þar sem ég var ekki með skilríki á mér. Já það var nefnilega föstudagur og í New York eru menn grjótharðir á þessu, um helgar fer enginn inn á pöbbana nema með skilríki. Ég varð því að skjótast heim á hótel takk fyrir að ná í slíkt. Skilaboðin þessi, verið með skilríki um helgar og ekkert múður. Leiðir okkar skildu því þarna og var ákv að hittast aftur á staðnum eftir skamma stund. Nú höfðu bjórvitringar heima á klakanum fengið veður af því að ég væri þarna á ferðinni og þeir Haukur Heiðar og Gunnar Óli bentu mér að smakka m.a. Ballast Point Sculpin Habanero IPA sem var fáanlegur á krana á The Ginger Man skv Beer Menus. Það var mikið crowd á Ginger Man þetta kvöld og ekki hægt að fá sæti. Ég pantaði mér þó samt þennan Habanero á meðan ég beið eftir Hauksanum. Ég hef áður smakkað grunnbjórinn þeirra, Sculpin IPA sem er svakalega flottur og því taldi ég mig nokkuð öruggan. Það er í fínu lagi að krydda bjór aðeins með chili eða einhverju öðru en fyrr má nú aldeilis vel vera þessi var svakalegur, þetta var allt allt of mikið. Svo mikið reyndar að ég náði ekki nema í hálfan bjór og þá gat ég ekki meir, tárin streymdu og nefholið hreinsaðist vel út. Ég get með nokkuð miklu öryggi mælt með því að menn forðist þennan bjór, gaman að smakka en ekki eyða pening í heilan bjór. Gunnar Óli, þú varst ekki að missa af neinu!„Rattl ‘N Hum er einn af þeim flottustu í New York. Frábær staðsetning, eiginlega við rætur Empire State byggingarinnar. Notaleg pöbbastemning, bjórfrótt starfsfólk, frábær matur og ofsalega flottur bjórlisti sem stöðugt er uppfærður. Mikið af sjaldgæfu stöffi á krana einnig. Þessi staður verður að vera á listanum, svo einfalt er það bara. Muna skilríki um helgar annars kemst maður ekki inn á neinn pöbb. Bjór ferðarinnar: Lagunitast Sucks American Strong Ale, þvílík fullkomnun. Passa sig á Ballast Point Habanero IPA, allt of mikill bruni.“
.
Whole Foods bjórinn – gríðarlegt úrval
Það var liðið dálítið á ferðina og tími til kominn að færa bjór í bú fyrir heimferðina. Það eru margar bjórbúðir í borginni og líklega best að fletta þeim bara upp á Beer Menus eða Ratebeer.com og lesa sér til um þá. Mínar áætlanir snérust hins vegar meira um það að sameina tvær flugur í sama hattinn og fara í mína uppáhalds matvöruverslun í Bandaríkjunum, Whole Foods. Ég einfaldlega elska þessa keðju, hún þykir reyndar örlítið dýr en þegar maður hefur komið í eina svona búð veit maður afhverju og manni er eiginlega bara alveg sama um verðið. Það er allt dásamlegt þarna, þeim tekst meira að segja að gera grænmetið girnilegt , brakandi ferskt og dásamlegt. Tómatar, epli, mango og ávextir sem maður hefur aldrei heyrt talað um eða dreymt um, allt raðað upp í fullkomna píramida sem maður þorir varla að hrófla við. Það er hins vegar í lagi því þegar maður tekur einn ávöxt úr þá er strax búið að fylla í skarðið með öðrum svo þetta líti allt vel út. Við svona heimsókn verður maður óþægilega var við hve svakalega við Íslendingar erum að láta Bónus, Hagkaup og hvað þetta heitir allt saman taka okkur í þurrt vesenið. Ég ætla svo ekki að byrja að tala um kjötborðið, það tæki bara of mikið pláss hér og svo er það auðvitað bjórinn. Já allar Whole Foods búðirnar hafa sæmilegt úrval bjórs í hæsta gæðaflokki og svo er nefnilega ein og ein búð sem ber af. Ein slík bjórparadís er einmitt að finna á Lower Manhattan, Whole Foods Bowery Culinary Center með um 1000 tegundir af bjór frá öllum heimsins afkimum, meira að segja okkar íslenski (sem má deila um) Einstök, því miður. Já ég skammast mín nefnilega dálítið fyrir að láta bendla þjóð mína við þennan bjór, það er bara svo margt miklu betra og flottara sem við framleiðum en svona er þetta nú bara. Það er svo einnig hægt að fá þarna „to go“ bjór í growlers og bjórsmakk við barinn.
Whole Foods var sem sagt áfangastaður minn þennan daginn og strax eftir ráðstefnulok kl 12:00 hóf ég langt rölt niður 5th ave í átt að markmiði mínu. Félagi minn var með í för en hann var eitthvað lasinn eftir kvöldið áður, líklega fengið ódýran bjór? Við hefðum vissulega getað tekið neðanjarðarlestina en þetta var fallegur dagur og félagi minn þurfti á súrefninu að halda. Þetta er líka fínt rölt og alls ekki leiðinlegt, er eitthvað leiðinlegt í NYC? Ef maður fer þessa leið kemur maður t.d.að hinu víðsfræga Flatiron húsi við Madison Square. Þetta er skemmtilegt hús sem maður þekkir frá fjölda ljósmynda af borginni. Þarna er sniðugt að segja skilið við 5th ave og taka strikið niður Broadway. Næst kemur maður svo að Union Square og er þá tilvalið að fá sér snarl á Bluewater Grill ef svo ber undir og ef veður er gott því ekki að setjast út á veröndina og horfa á mannhafið líða hjá. Ég mæli með sushi-inu þar, alveg magnað og auðvitað ferskann IPA með. Eftir smá púst og bjórun þarna héldum við félagar áfram dágóðan spöl, það má auðvitað taka subway í staðinn ef maður er að flýta sér. Loks komum við að Whole Foods og þvílíkt úrval af bjór, gríðarlegt úrval af amerískum bjór og svo auðvitað annað stöff með. Þarna skildu leiðir okkar því það eru fáir félagar mínir sem hafa sömu þolinmæði og ég í svona bjórbúðum. Líklega einum og hálfum tíma síðar rölti ég af stað með mörg kg af bjór frá 1.st street og alveg upp á 39th á hótelið mitt. Allt of langt ég veit, næst myndi ég líklega taka lestina, hins vegar græddi ég gríðalega góðan bjór á leiðinni, líklega 3. besta bjór ferðarinnar takk fyrir. Já ég hafði merkt inn á bjórkortið mitt Coopers Craft & Kitchen á 2nd avenue eiginlega bara af því að þegar ég skoðaði Beer Menus rétt fyrir brottför voru þeir með Dogfish Head 120 minute IPA á krana sem er einn af mínum uppáhalds. Þeir áttu hann því miður ekki til sem er kannski gott því ég held að þetta hefði annars farið illa. Í staðinn fékk ég mér Lagunitas Little Sumpin Extra, 8.5% DIPA og lofið mér bara að segja ykkur þetta er einfaldlega æðislegur bjór. Fullkomið bensín á tankinn, humlaður, þéttur, ferskur, frúttaður og dásamlegur enda ekki við öðru að búast frá þessu fáránlega flotta brugghúsi, ég hef ekkert smakkað nema gott frá þeim. Ef ég hefði ekki þurft að mæta á „Stand Up“ show á Broadway síðar um kvöldið (luxusvandamál ég veit) hefði ég líklega ílengst þarna langt fram á kvöld. Pöbbinn var ágætur en ég skoðaði hann svo sem ekkert frekar. Það var ekkert spes við hann, sæmilegt bjórúrval en ekkert í líkingu við hina staðina sem ég skoðaði í þessari ferð. Mæli því ekkert sérstaklega með honum nema jú maður fari þarna í Whole Foods auðvitað. Svo má benda á annan stað þarna rétt hjá, Jimmys sem ég heimsótti reyndar fyrir nokkrum árum. Ég var ekkert ofsalega hrifinn þá en það var mjög gott úrval af bjór þar á þeim tíma. Haukur Heiðar Leifsson, bjórperri er held ég nokkuð sáttur við Jimmys, það er þó eitthvað.
En áfram með smjörið, ég hélt áfram en gafst upp þegar ég var kominn á 23. stræti. Ég var eiginlega kominn of langt fyrir subway, það tók því bara ekki en ég var líka kominn of langt til að geta haldið áfram. Alveg búinn á því. Ég var alveg að því kominn að lippast niður og safnast til feðra minna þegar ég rak augun í Taproom 307 sem ég hafði aðeins lesið um á netinu. Ég skreið því þangað inn og nældi mér í einn Greenflash Westcoast IPA af krana sem kom mér í rétta gírinn aftur, það er bara eitthvað við það að drekka amerískan west coast IPA á the east coast í Ameríku 🙂 Nóg um það, að var ekkert meira í bjórfregnum þennan daginn, ja nema jú að ég ákvað að laumast í Dogfish Head 120 minute IPA sem ég hafði verslað í Whole Foods rétt fyrir brottför á Stand up showið þar sem ég vissi að bjórinn þar væri algjörlega hræðilegur.
Svo er það ein ábending í lokin ef maður kaupir bjórglös, t.d. eins og á Tørst, maður getur tekið þau með í handfarangri svo lengi sem þau eru tóm. Já þannig er auðveldlega hægt að komast hjá því að þau brotna. Flöskubjórinn fer auðvitað í töskurnar og muna að pakka þeim bara vel inn. Ekki vitlaust að vefja eldhúsfilmu t.d. utan um korktappa svo þeir skjótist nú ekki af. Nánar um hvernig best er að færa björg í bú má lesa hér.
.
The Jeffrey, einn af topp þrem
.
Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur og gríðarlega heitur. Ég var eiginlega kominn í tímaþröng með H&M innkaupin, já ég fékk nefnilega með mér lista frá frúnni. Það var gríðarlega heitt þennan dag, 32-4 stig og mikill raki. Ég ætla að nota hér tækifærið og ráðleggja fólki að hafa með sér stuttbuxur og sandala ef ferðast er um sumar, ég var ekki með neitt slíkt og þurfti því að stóla á ölið til kælingar, maður veit jú aldrei hvað getur leynst í vatninu.
. Planið var að klára skylduinnkaupin og reyna svo að túristast dálítið en það sem var mikilvægast, að skoða The Jeffrey sem er einn af þessum nýju flottu í New York borg og fær mjög góða dóma. Þessi staður sérhæfir sig í gourmet kaffidrykkjum af öllum gerðum og stærðum á daginn og svo sérbjór og geðveikum sci-fi hanastélum á kvöldin. Vissulega er hægt að fá bjór yfir daginn og kaffi á kvöldin en hitt kemur bara betur út á prenti ekki satt? Bjórlistinn er nokkuð stór og úrvalið svalt, mikið af sjaldgæfu stöffi. Ég fann strax á mér þegar ég las um staðinn að við ættum eftir að eiga vel saman, ég meina The JefFREY segir sig bara sjálft. Staðsetningin er fín ef maður er að þvælast í kringum Central Park, Apple Store og þar um kring því þeir liggja á East 60th Street sem reyndar er dálítill spotti að rölta.
. Þetta er snotur lítill staður sem er dálítið sérkennilega upp settur, það eru nefnilega tvær inngönguleiðir og er eins og um tvo staði sé að ræða, einn kaffibar og einn bjórbar sem báðir eru frekar þröngir. Staðirnir enda svo í sameiginlegum litlum sal innst þar sem finna má borð og stóla og svo er hægt að setjast þaðan út í „beergarden“ ef vel viðrar. Talandi um veður, það var búið að spá þrumuveðri þennan dag. Hitinn var gríðarlegur og öll föt nánast gegnsósa af svita. Skömmu eftir að ég kom á Jeffrey fór a
ð rigna og ég er að tala um alvöru rigningu sko. Það er allt stórt í Bandaríkjunum og þessi regnskúr var engin undantekning með meðfylgjandi þrumum og eldglæringum. Ég ætlaði fyrst bara að fá mér einn öl eða tvo og drífa mig svo að túristast eitthvað með Hauksanum en þar sem ég var strand þarna vegna veðurs urðu bjórarnir aðeins fleiri. Ég get alveg sagt ykkur að það eru margir staðir verri að vera veðurtepptur á. Það var hugguleg stemning á staðnum og bjórlistinn ofsalega flottur. Barþjónninn var vinalegur og bjórfróður og mjög viljugur að fræða mig um ölið, svo fékk maður líka smakkprufur ef maður vildi sem mér finnst alltaf grand. Ég man eiginlega ekki eftir fyrsta bjórnum en bjór númer tvö var rosalegur, við erum að tala um annan besta bjór ferðarinnar, Stone Collective Distortion 9.3% DIPA. Við erum að tala um fáránlega góðan bjór, veeeel humlaður enda hlaðinn Nugget, Comet og Calypso humlum ástamt nýjum áströlskum Vic’ Secret humlum sem ég kann lítil deili á. Gríðarlega þróttmikill en í senn ferskur. Vic’ Secret humlarnir koma vel út, hef aldrei smakkað þá fyrr. Ég var hættulega fljótur með þetta monster og ákv að fara í einn kaffibolla svona til að friða samviskuna. Maður verður jú að smakka kaffið þarna sem þeir monta sig svo mikið af. Ég veit ekki en mér fannst kaffið ekkert sérstakt, það var mjög gott en bara ekki sérstakt. Líklega ekki gott að ýta kaffibolla á eftir DIPA? Nú var ég orðinn svangur og enn rigndi hundum og köttum fyrir utan. Matseðillinn leit ofsalega vel út og ákv ég að prófa osta og kjötbakkann þeirra, maður velur sjálfur ostana á bakkann og kjötið. Svo verður maður jú að hafa bjór með og hvað er þá betra en belgískt öl með ostunum? Júbb það er rétt nema hvað að ég er bara ekki að tengja nægilega vel við belgíska bjórinn þessa dagana. Ég fór því milliveginn eftir að hafa fengið smakkprufu auðvitað og fór í belgískan IPA, De Ranke XX Bitter. Gott stöff en eftir Stone virðist allt blikna í samanburði. Osta og kjötbakkinn var svakalegur. Já The Jeffrey er klárlega staður sem verður heimsóttur í næstu ferð, maður á svo eftir að prófa þessa margumtöluðu kokteila þeirra einnig. Það er tilvalið að drösla frúnni með og raða í hana kokteilum á meðan bjórinn er teygaður með góðri samvisku.
„The Jeffrey er einn af þessum nýju bjórstöðum í New York borg þegar þetta er ritað. Þröngur og undarlegur bar sem er skipt í kaffibar og bjórbar. Þeir gera stórgott gourmet kaffi, eru með mjög flottan bjórlista, sjaldgæft stöff og gott. Svo segir sagan að þeir geri furðulegustu og bestu hanastélin í bænum. Þjónustan er virkilega góð og ekki sparað í mann smakkprufurnar. Maturinn er stórgóður. Allt í allt virkilega ljúfur staður og ef ég mætti bara skoða 3 staði í NYC þá væri þessi á þeim lista. Bjór kvöldsins og jafnframt 2. besti bjór ferðarinnar: Stone Collective Distortion 9.3% DIPA„
.





