Hmmmmm?

IMG_2215

Úr Vínbúðinni

Við Íslendingar erum skammt á veg komnir í bjórmenningu, það er ekki nein ný vitneskja svo sem.  Við erum langt á eftir vel flestum öðrum þjóðum heims í þessum efnum.  Skýringin sennilegast sú að við máttum ekki drekka bjór þar til nýlega en fáfræði kemur einnig við sögu.  Við erum ekki nægilega bjórmenntuð þjóð.  Við erum þó öll að koma til, úrval bjórs fer sífellt batnandi, bjórvitund barþjóna er hægt og rólega að komast á viðunandi  form og lítil spennandi brugghús að skjóta upp kollinum.  Fólk er orðið forvitið og byrjað að fikta í mismunandi bjór.  Þetta er jákvæð þróun því þetta þýðir betra úrval í framtíðinni.   En það má alltaf gera betur, við verðum að halda áfram á þessari braut.  Það er mikilvægt að fólk sem er forvitið um þessa hluti eigi sem auðveldast með að fá aðstoð og upplýsingar því það er þannig sem bjórvitundin vex og dafnar.  Það er því ógurlega pirrandi þegar maður verður vitni af beinlínis rangri miðlun upplýsinga af hendi fólks sem hefur með sölu á bjórs að gera.  Þetta sé ég stundum á pöbbum borgarinnar þegar ég spyr um ákv bjór sem á boðstólnum er.  Stundum vita menn akkúrat ekkert um það sem þeir eru að servera sem er jú afar miður.  Eins er þetta stundum svona í Vínbúðinni góðu. Hef oft orðið vitni af því þegar fólk er að spyrja um ákv bjór að starfsfólk gefur kolrangar upplýsingar.  Stundum svo mikið bull að ég hef ekki getað setið á mér og leiðrétt miskilninginn svo lítið fari fyrir.  Eitt sinn heyrði ég starfsmann segja „nei nei Freyja er ekki hveitibjór, hann er síaður“ og annan segja „ taktu frekar Leffe ljósan, sá brúni er dökkur bjór og miklu bragðmeiri og ekki eins sætur“.  Ekki alveg orðrétt en mjög nálægt því.  Þetta er sem betur fer ekki algilt, það er fullt af fólki í bæði Vínbúðinni  sem og á pöbbunum sem veit um hvað það er að tala en það má samt laga til.  Myndin hér að ofan sem tekin var í gær er dálítil áminning um að það má laga margt.  Manni findist eðlilegt að upplýsingar um bjórinn væru réttar í Vínbúðinni.  La Trappe Witt er ekki miðlungs ljós lager heldur yfirgerjaður hveitibjór sem flokkast sem öl.  La Trappe blond er heldur ekki sterkur lager, langt í frá.  Ég veit ekki út í hvern er að sakast, kannski upplýsingar komnar frá innflytjanda? Kannski er einhverstaðar skrifað að notað sé lagerger í bjórinn þó ég efist um það, bruggaðferðin sem og bragð segja allt annað.

Arh Hvad? Mikkeller Orval klónn

Arh Hvad? Orval klónn frá Mikkeller

Bjór þessi hefur valdið nokkru fjaðrafoki á fésbókinni okkar.  Menn heitir í umræðunni um bjórinn en líkast til allt byggt á dálitlum misskilningi og kannski stríðni.  Bjórinn er enn eitt fóstur Mikkeller. Um er að ræða dálítið spes bjór sem á að vera óður til Orval sem er einn af uppáhalds bjór Mikkels.  Oravl er belgískur Trappist bjór á súrum nótum.  Stílinn kallar hann Belgian Pale Ale sem er svo sem ágæti spæling því ekki getur hann kalla hannTrappist 🙂  Nafnið á bjórnum er orðaleikur og kannski erfitt að skilja nema maður sé vanur danskri tungu.  „Arh Hvad?“ hljómar í munni Danans dálítið eins og „Ogh Val“ eða bara Orval.  Þannig er leikurinn gerður.  Hér má sjá hvernig bera á fram nafnið, sjálfur Mikkel kemur þarna fyrir meira að segja http://www.youtube.com/watch?v=kpa8KEPZ9og&feature=youtu.be.

Nóg um það, nú hef ég smakkað þennan bjór amk 5 sinnum.  Í fyrsta sinn þá var það eftir 4 freyðivínsglös og tvo bjóra á Kex.  Það er kannski þess vegna sem hann virkaði ekkert sérlega spes í upphafi.  Góður bjór, ekta brett, ferskur og fínn.  Mikkeller hefur gert ansi marga „brett baseraða“ bjóra til þessa.  Villigerið setur mjög einkennandi mark á bjórinn og því er oft um keimlíkan bjór að ræða.  Þessi virkaði einfaldlega ekkert sérstakur í röðinni.

Álit mitt hefur sannarlega breyst eftir nákvæma smökkun með hreina pallettu.  Þetta er kannski gott dæmi um það sem ég hef oft sagt, sami bjórinn getur verið mismunandi eftir við hvaða tækifæri hann er smakkaður.  Nóg um það.  Bjórinn er stórglæsilegur í glasi, hnausþykk froða sem grípur dauðahaldi í glasveggina.  Endist allan bjórinn.  Í nefi er villigerið áberandi með sinn súra ferska blæ, lítið fer fyrir humlum.  Minnir þarna strax á Orvalinn.  Í munni er hann bragðmikill og ferskur.  Töluvert súr og brettaður.  Sítrus keimur og ögn humlar í restina.  Fylling er í meðallagi og svo er einhver bakgrunnur sem ég átta mig ekki alveg á.  Salt? Ristað malt? Ég veit ekki alveg.  Bjórinn er bara stórgóður, það er kannski það mikilvægasta og hann fæst hér í Vínbúðinni góðu.  Um samlíkinguna við Orvalinn þá vil ég sem minnst tjá mig að svo stöddu, það er orðið langt síðan síðasti Orval var drukkinn hér á bæ.  Hann minnir þó óneitanlega á hann en ég þarf eiginlega að smakka þá saman til að fara nánar út í það.

Þessi gæti komið skemmtilega út með grilluðum humar.

Sá græni: Flottur bjór, mattur og ósíaður.  Flott þétt froða.  Í nefi skrítin súr lykt en frískandi.  Í munni mjög skrítinn bjór fyrir þá sem ekki eru vanir bjórfikti.  Mjög forvitilegur bjór samt.  Súr og þurr og minnir á mysu.  Það er ekki víst að menn elski þennan í fyrstu, alls ekki.  Gott að hafa það í huga.